RUBIX hóf starfsemi á Íslandi árið 2007 undir merkjum Brammer. Árið 2010 var Brammer Ísland ehf stofnað og starfaði í kjölfarið sem sjálfstæð eining í fyrirtækjasamstæðunni. Eftir sameiningu Brammer Group og fyrirtækisins IPH-Group var ákveðið að starfa undir einu nafni, RUBIX.

RUBIX á Íslandi er hluti af RUBIX-GROUP sem árið 2018 var með yfir 2.3 milljarða evra í veltu og rúmlega 8000 starfsmenn. RUBIX-GROUP var stofnað í september 2017 með samruna IPH-Group og Brammer Group. Eigandi RUBIX er Advent International sem er amerískur fjárfestingarsjóður. RUBIX er leiðandi fyrirtæki í Evrópu í sölu á varahlutum og iðnaðarvörum til viðgerða og rekstrar. Með starfsemi í yfir 23 löndum Evrópu og 650 staðsetningum, getur RUBIX boðið upp á víðtæka sérfræðiþekkingu á varahlutum og iðnaðarvörum almennt sem og aðlagaða þjónustu og eigin lausnir að þörfum viðskiptavina.

RUBIX á Íslandi er með tvær starfsstöðvar, eina á Reyðarfirði sem þjónustar starfsemi Alcoa Fjarðaáls með sérsniðna og víðtæka þjónustu á sviði vöruhúsa og aðfanga vegna varahuta og rekstrarvara. Hin starfsstöðin er í Kópavogi að Dalvegi 32a, þar sem er til húsa verslun, skrifstofa, vöruhús og verkstæði fyrir alla starfsemi á landinu. Á Íslandi starfa í dag um 40 manns, fjölbreyttur hópur sérfræðinga hver á sínu sviði. Auk sölu á varahlutum og rekstarvöru er boðið upp á ýmis konar þjónustu á Dalvegi eins og smíði á vökva- og loftslöngum, samsetningu á stýriskápum fyrir vökvakerfi og merkingar á vinnufatnaði svo eitthvað sé nefnt. Á Dalveginum er verslun eins og áður segir og þar er til sýnis hluti af því vöruframboði sem RUBIX er að bjóða upp á á hverjum tíma.

Stefna RUBIX er að vera markaðsleiðandi fyrirtæki á sínu sviði sem getur þjónustað öll fyrirtæki á landinu með sérsniðnar lausnir, hvort sem það sé sala varahluta, viðgerðarþjónusta, iðnaðarsjálfsalar (InvendTM), starfsstöð innan fyrirtækis (InsiteTM) eða annað. Við störfum undir sterkum gildum samstæðunnar sem við leggjum áherslu á að innleiða í okkar daglega starf þar sem við erum heiðarleg, tökum ábyrgð og framkvæmum, erum forvitin, gefumst ekki upp og fögnum fleiri viðhorfum. RUBIX á Íslandi vill færa fyrirtækjum á Íslandi aðgang að vöruframboði sem ekki hefur þekkst áður hér á landi. Það er markmið og stefna okkar að bjóða fyrirtækjum upp á heildarlausnir sem styðja og efla rekstur hvers fyrirtækis fyrir sig. Er það von okkar að þjónustuframboð okkar og það vöruúrval sem er í boði geri fyrirtækjum kleift að einfalda sinn rekstur og aðfangastýringu með notkun á okkar nútíma lausnum.